Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Afmæli Todd
Föstudagur 29. júní (HMG) - [Sett á vefinn laugardag 30. júní]
Todd átti afmæli þann 23. júní en þar sem hann kom ekki úr sumarfríinu fyrr en þann 28. júní, þá gátum við ekki haldið upp á það fyrr en í gærkvöldi. Þar sem að við, Deirdre og Shahriyar erum öll flutt af kampus og til Mountain View, þá þótti tilvalið að fara á "alvöru" írskan pöbb í miðbæ Mountain View í staðinn fyrir CoHo-ið.
Við komum okkur þægilega fyrir í einu horninu...
Deirdre, Shahriyar og Finnur kát og fín á írska pöbbnum sem mig minnir að
heiti St. Stephens Green eða eitthvað álíka. Ætli maður verði ekki að fara aftur
til að leggja nafnið betur á minnið... ;)
Finnur og afmælisbarnið með pakkana...
Eins og venjan er þá urðum við að gefa honum áberandi
og agalegan fatnað í tilefni afmælisins og til að dulbúa
hann var notaður eitt stykki amazon.com kassi...
hvað ætli sé í kassanum...?... ;)
Ó, já... stórkostlegt höfuðfat... beint úr prinsessudeildinni í Target... ;)
Todd var sko ekki alveg á því að setja þetta á kollinn á sér
á almannafæri... eeeeeen....
Sko hvað hann er fínn!! :) :)
Eitthvað tolldi höfuðfatið illa á kollinum á Todd og flakkaði það á milli nokkurra manna...
Hér fær Finnur að prófa... þetta fer honum svo vel! ;)
Allt í einu stökk Deirdre upp úr stólnum og hljóp út á götu. Þegar hún kom
til baka voru með henni Morris og Anita. Morris er vinur Deirdre frá Cambridge
og Anita var nýlent í Bandaríkjunum en hún er í landafræðinámi.
Fyrir þá sem velta fyrir sér hvar Kerri var eiginlega, þá var hún á gönguferðalagi í Utah með gamla kærastanum af austurstöndinni. Já, hún er skemmtileg þessi veröld! :) Hvað um það, við pöbbuðumst svolítið lengur en fórum síðan á indverskan veitingastað áður en Deidre, Todd og Shahriyar komu heim til okkar og horfðu á um tvo Monty Python Flying Circus þætti... ég keypti sko alla seríuna á 14 DVD diskum núna um daginn...!! :)
Algjör snilld!! Svo fóru allir heim og við Finnur sofnuðum næstum því á vindsænginni í stofunni sem er þar í staðinn fyrir sófa... hehe.