Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Glænýir foreldrar
Þriðjudagur 26. júní (HMG) - [Sett á vefinn laugardag 30. júní]
Þriðjudaginn 26. júní 2001 fæddist Arnari, bróður mömmu, og Magneu hinn myndarlegasti drengur. Hann reyndist vera 17 merkur og 54 cm, stór og stekur, enda hafði hann heldur betur látið bíða eftir sér. :)
Við óskum hinum nýbökuðu foreldrum innilega til hamingju með drenginn og hlökkum til að sjá hann vaxa úr grasi á næstu árum og áratugum! :)
Fyrsta myndin
Uh... hvað er þetta?... Lak?!
Hmmm... ætli sé hægt að fá eitthvað að borða hérna?... :)
Oh... þvílík dúlla!! :)
Arnar og Magnea með litla prinsinn í Hreiðrinu.
Bæði móður og barni heilsast vel og það ríkir mikil sæla í Bogahlíðinni um þessar mundir. :) Enn og aftur innilega til hamingju!!!