Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Jói og bílarnir
Laugardagur 23. júní (HMG) - [Sett á vefinn laugardag 30. júní]
Jói og Kata komu þann 14. júní og keyrðu strax þann 15. júní sem leið lá niður til LA, síðan til San Diego og svo stoppuðu þau í Mexíkó í um tvær klukkustundir áður en þau gáfust upp á sölumönnunum... ;) Föstudaginn 22. júní komu þau til baka til okkar eftir að hafa kíkt á tvær, ef ekki þrjár bílasýningar í LA ásamt fleiru. Það ætti því ekki að koma neinum á óvart að á laugardeginum var haldið á risastóra Mustang-bílasýningu, en Jóhann er mikill áhugamaður um þá bílategund. Með í för voru Kata og Hrefna, en Finnur notaði tækifærið og fór í vinnuna á meðan. Það er svona að vinna hjá Start-öpp fyrirtæki! ;)
Mustang merkið í allri sinni dýrð. Ef maður gæti nú bara losnað við
þessa ljósku úr bakgrunninum! ;)
Kata og Jói við þennan svarta... brúmm brúmm!!
Ah... það er sko líka til blár... og hvítur ... og appelsínugulur.. og.. og!!! :)
Þokkalega flottur!
Jóhann var að sjálfsögðu í Mustang stuttermabol... ;)
Við stelpurnar fundum að sjálfsögðu eitthvað við okkar hæfi... föt!! :)
Æji.. þetta eru bara Mustang-bolir!! ;)
Svo gengum við fyrir hornið og ...
Íííík!! Þetta voru svo margir bílar að okkur Kötu leist ekkert á blikuna og
við stungum af í alvöru verslunarleiðangur... keyptum hlaupaskó og
leikfimibuxur til að undirbúa okkur undir að hreyfa okkur eitthvað...
Maður á víst að gera svoleiðis líka! :)
Hér er Hrefna komin í nýju hlaupaskóna. Voða þægilegir.
Við gengum örlítið meira um á meðan Jóhann tók bílana upp á
myndbandstökuvél og fundum þennan sæta rauða blæjubíl frá 1966 (?).
Ég get svo svarið það... bílaáhugamenn eru klikk! ;)
Hér eru flestir bílarnir farnir því klukkan var orðin svo margt.
Sýningunni átti að ljúka klukkan 14:30 og um það leyti byrjuðu bílaeigendurnir að keyra bílana í burtu - sem reyndist vera aðal-sportið fyrir Jóa sem festi þá flesta á myndband. En þessu lauk nú um síðir og allir lifðu Mustangana af! Þá var bara að ná í Finn, koma sér heim og fara síðan út að borða. Nammi namm!