Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Flutningar
Miðvikudagur 20. júní (HMG) - [Sett á vefinn laugardag 30. júní]
Fyrst af öllu... Til hamingju með afmælið mamma þann 20 .júní! :)
Þá var runninn upp dagurinn þar sem við áttum að skila af okkur gömlu íbúðinni á kampus. Kvöldið áður hafði ástandið verið svona...
Ástandið á þriðjudeginum... hvaðan kom allt þetta drasl?!?! ;)
Það skal tekið fram að húsgögnin fylgdu íbúðinni.
Ég keyrði Finn í vinnuna um morgunin og fór með næst-næst síðustu kassaferðina. Síðan kom ég aftur "heim" og byrjaði að taka til. Eins og þeir sem hafa flutt kannast við þá þarf að þrífa allt hátt og lágt: eldhúsinnréttinguna, alla skápa, skúffur, baðherbegi, öll húsgögn, ryksuga og þvo bletti af veggjum.... og íbúðin átti að vera tilbúin klukkan 17:00. Upp úr hádegi sá ég ekki fram á ná þessu ein og kallaði því inn liðsauka - Kerri og Deirdre!! Þær komu eins og bestu hjálparenglar og með samstilltu átaki var íbúðin orðin glansandi klukkan 16:30. Það mátti ekki tæpara standa! :)
Thank you Kerri and Deirdre!! :)
Kerri sá um eldhúsið. Það hefur aldrei verið svona hreint!! :)
Deirdre þreif húsgögn hátt og lágt og sá um stofuna og endurvinnsludraslið.
Og þar með vorum við formlega flutt!
Stofan á nýja staðnum. Sjónvarpið er hreinlega lítið!! :)
Hér er útsýnið af svölunum - sem betur fer fáum við síðdegissólina en
ekki morgunsólina. Það þýðir væntanlega að ég næ að sofa lengur en til
6 á hverjum morgni í sumar! :)
Til að bjarga húsgagnaskortinum þá hlupum við í Walmart og keyptum
plastborð á $20 og bættum við tveimur svalastólum. Þess má geta að
fyrsta kvöldmáltíðin var pizza...
Svo þurfti að sjálfsögðu að setja nýju tölvuna upp... hver þarf svo sem
skrifborð..?! Það er internettengingin sem skiptir öllu máli!!!! :)
Við erum bara alveg í skýjunum yfir nýju íbúðinni. Hún er voða fín og björt og hverfið í kring er bara nokkuð öruggt. Svo er mjög þægilegt að hafa stórverslanirnar svo til á næsta horni - svo ekki sé minnst á mýgrút af veitingastöðum og miðbæ Mountain View, sem er rosafínn. :)