Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Námskeið
Þriðjudagur 19. júní (HMG) - [Sett á vefinn laugardag 30. júní]
Fyrir nokkrum vikum síðan skráðum við Kerri og Janine okkur á námskeið í "upplýsingahönnun" eða "information design". Tilgangurinn var sem sagt að fræðast um hvernig best væri að koma upplýsingum á framfæri (með texta eða gröfum eða "lifandi myndum" eða...) og fyrirlesarinn var maður að nafni Edward R. Tufte - sjálfskipaður snillingur í "upplýsingahönnun" og prófessor við Yale háskóla (að ég held). Svo skemmtilega vildi til að námskeiðið var haldið degi eftir að við byrjuðum að flytja og degi áður en við áttum að skila af okkur gömlu íbúðinni - og ég var gjörsamlega búin að gleyma því að ég ætti að mæta á þetta námskeið þegar ég skipulagði flutningana. En hvað um það... Kerri, Janine og ég mættum stundvíslega um hálf-tíu leytið á Hyatt hótelið í Palo Alto og bjuggum okkur undir að verða fyrir allsherjar uppljómun... ;)
Yfirskrift námskeiðisins og undir því er "besta graf í heimi".
"Besta graf í heimi" er eftir Charles J. Minard (1781-1870) og sýnir herferð Napoleons frá landamærum Pólands og Rússlands (lengst til vinstri) til Moskvu (lengst til hægri) . Alls eru sex breytur sýndar á þessu merkilega grafi: 1) breiddin á línunni sýnir fjölda hermanna (422.000 manns í upphafi, 10.000 í lokin), 2&3) staðsetning hersins er gefin í tveimur víddum, 4) brúna línan er árásarleiðin en svarta línan sýnir uppgjafarleiðina, og fyrir neðan eru svo upplýsingar um 5) tímann og 6) hitastigið, en meiriparturinn af hermönnunum svalt eða fraus til dauða... Að sjálfsögðu var eintak af þessu merkilega plaggi innifalið í námskeiðiskostnaðinum. :)
Þegar inn kom blasti við þessi frekar stóri salur þar sem næstum
hvert einasta sæti var upptekið. Flestir virtust hins vegar vera eldri en við...
Maðurinn í hvítu skyrtunni fremst (og í fókus) er sjálfur Edward R. Tufte. Merkilegt nokk þá notaði hann tjöldin tvö ekki undir "powerpoint" glærur, heldur varpaði hann upp myndum úr frægum bókum eins og Principíu Newtons, þróunarkenningu Darwins og flatarfræðibók Evklíðs (?). Og til að sýna nú öllum að hann væri mikilvægur og merkilegur maður þá veifaði hann líka frumútgáfunum af fyrrnefndum bókum fyrir framan nefið á áhorfendum. (Já, ókei.... þetta eru reyndar alveg fáránlega merkilega bækur en fyrr má nú fyrr vera... ;) Svo var hann með aðstoðarmann sem gekk hanskaklæddur með hverja bók heilan hring um salinn og sýndi þeim sem sjá vildu það Prófessor Tufte vildi að við sæjum. Prófessor Tufte talaði annars bara út í eitt, sýndi nokkur fróðleg dæmi og leiddist með reglulegu millibili út í kynningarstarfssemi á eigin verkum, en það var nú við því að búast... ;) Hann þuldi líka upp nokkrar meginreglur við gerð grafa, við flutning fyrirlestra og þess háttar og vitnaði óspart í bækurnar sínar þrjár sem nú voru í okkar eign. Ó, já, námskeiðinu fylgdi ekki ein bók, ekki tvær bækur ... heldur þrjár bækur!! Við erum svo sannarlega stödd í henni Ameríku... ;)

Hér eru bækurnar þrjár ásamt grafinu. Allt þetta er nú mitt! :)
Svona var mitt útsýni (ja, hausinn á mér var reyndar aðeins hærra uppi)...
Sem afleiðingu af því að við fengum plaggat og þrjár bækur til að taka heim, þá var líklega ekki nógu mikill peningur eftir til að bjóða fólki upp á eitthvað að borða og því þurftum við að fara eitthvert annað í hádeginu. Við fórum á þennan ágæta kínastað í nágrenninu og komum svo til baka um eittleytið, tilbúnar að takast á við það hvernig verkfræðingar klúðruðu því að stöðva Challenger geimflaugina - þeir kunnu nefnilega ekki að koma upplýsingum á framfæri þannig að þær væru skiljanlegar... það mun víst vera algengt vandamál í minni stétt...hóst, hóst...
Janine og Kerri á leiðinni inn í fyrirlestrarsalinn eftir hádegismatinn
Beðið eftir að herlegheitin hæfust eftir hádegishlé...
Námskeiðinu lauk klukkan fjögur og því verður ekki neitað að maður er nokkuð fróðari um listina að tjá sig og setja fram upplýsingar þannig að maður dragi fram aðalatriðin. Ég er samt fegin að hafa ekki borgað fyrir sjálfa mig því deildin hjá Stanford borgaði fyrir mig og reyndar Kerri líka. Almennt verð var $320 en verð fyrir námsmenn var $160. Eftir á að hyggja þá var þetta líklega $160 dollara virði en varla $320 dollara virði... ;)
En þegar heim kom var kominn tími á að setja meira dót í kassa og fórum við Finnur með nokkra kassa þá um kvöldið.