Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
17. júní 2001
Sunnudagur 17. júní (HMG) - [Sett á vefinn fimmtudaginn 30. júní]
Á lýðveldisdegi okkar Íslendinga vorum við boðin í sundlaugapartý hjá Guðrúnu og Snorra. Þau eru nýbúin að kaupa sér rosalega fínt hús í Fremont og þótti tilvalið að velja þennan dag til að bjóða öllum Íslendingaskaranum í partý! Inn á milli voru líka nokkrir útlendingar, aðallega starfsmenn í fyrirtækinu þeirra, Lightspeed Games.
Húsið þeirra Guðrúnar og Snorra er sko engin smásmíði!! :)
Hér eru Guðrún, Soffía - sem heldur á Ölmu Hildi - og Stefán við hlaðborðið.
Forseti vor, Herra Ólafur Ragnar Grímsson, sómdi sér vel á hlaðborðinu.
[June 17th is Iceland's Independance Day (from Denmark in 1944) and
here is a picture of the president, Mr. Olafur Ragnar Grimsson]
Húsið þeirra Snorra og Guðrúnar er bæði bjart og rúmgott, en punkturinn
yfir i-ið er sundlaugin í bakgarðinum, sem var alveg nauðsynleg til að
kæla mannskapinn niður.... Hvað, var rigning í Reykjavík?! ;)
Logi, Joe Woo, Finnur og Sólveig konan hans Joe.
Ágúst hennar Soffíu og Lotta hans Úlfars (sem Finnur vinnur hjá)
hafa það gott í sólinni.
Drengirnir ræða saman
Guðrún að hjálpa Sif úr handakútunum
Svo var auðvitað grillað líka. Grillmeistarar voru
Halldór og Snorri og fá þeir hrós fyrir. :)
Það var heldur betur nóg af fólki! :)
Karlmennirnir gæða sér á veitingunum í "bakstofunni"
Jónína með Unni dóttur sína sem var að fara á ballettsýningu.
Þegar líða tók á daginn fóru stóru drengirnir í laugina...
...en á meðan lék Finnur við litlu börnin, þ.e. Jakob þeirra Jónínu og Eggerts og
Sif þeirra Guðrúnar og Snorra. Hvar ætli skóflan hans Finns sé?! :)
Svo heyrðist dingalíng af götunni og þar var ísbíllinn kominn!
Allir út á götu að kaupa ís!! :)
17. júní lauk síðan með kvöldspjalli á sólpallinum og undir lokin komu
Berglind og Styrmir ásamt föður Styrmis í stutt innlit. Þau voru nýkomin af
afar fínum veitingastað því Styrmir hafði útskrifast með mastersgráðu
frá Stanford fyrr um daginn. Til hamingju með það Styrmir! :)