Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Jóhann og Kata
Fimmtudagur 14. júní (FBÞ) - [Sett á vefinn sunnudaginn 24. júní]
Jóhann (fyrrum EJS vinnufélagi Finns) kom í heimsókn með konunni sinni, henni Kötu, á fimmtudeginum. Þau lentu um hádegi að staðartíma eftir um 22 tíma ferðalag (og tveggja tíma svefn þar á undan). Þau höfðu eytt nokkrum dögum í Noregi hjá vinafólki og flugu svo til Bandaríkjanna með millilendingu í Frankfurt. Þau voru því þreyttir ferðalangar þegar Hrefna tók á móti þeim á flugvellinum, á meðan Finnur var í vinnunni.
Við ætluðum að fara með þau út að borða en sáum fram á það að þau myndu sofna í súpunni þannig að við ákváðum að elda bara fyrir þau pizzu og leyfa þeim að fara að sofa á vindsæng í stofunni hjá okkur.
Jóhann og Kata mætt
Þau ætla að vera í Bandaríkjunum í tvær vikur, fyrri vikuna ætluðu þau að ferðast suður eftir til Los Angeles, San Diego og Mexico og seinni vikuna ætluðu þau að eyða með okkur.
Morguninn eftir lögðu ferðalangarnir af stað í áttina að Mexico...
Hér sjást tryllitækin okkar... við eigum þennan hvíta og Jói og Kata eru á...
... á gulu hættunni!! (Ford Mustang)
Þau sögðu (þegar þau komu aftur viku seinna) að það hefði verið þvílíkt auðvelt að finna gula bílinn á plani verslanamiðstöðva í Los Angeles.
:)