Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Taly kvödd
Miðvikudagur 13. júní (FBÞ)  - [Sett á vefinn sunnudaginn 24. júní]
Um daginn bauð Taly vinum sínum heim í eins konar kveðjuhóf, í ís og spjall, en hún verður fjarverandi í allt sumar. Kvöldið áður hélt Todd heim til Chicago þar sem hann verður í 3 vikur, en við náðum ekki að kveðja hann enda Hrefna í síðasta prófinu.  Augusto fór síðan á föstudeginum, svo það er nokkuð ljóst að það verður fámennt (en góðmennt) á kampus í sumar...

Gestirnir komust í blöðruplastið hennar Taly...

... og fóru hamförum ...

... gestgjafanum til mikillar skemmtunar ... (öhömm) ... :)

Hrefna og Janine, systir Kerri

Kerry og Taly

ahemm... þeir eru skrítnir þessir kanar! ;)