Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Gísli og Björn
Laugardagur 2. júní (FBÞ) - [Sett á vefinn sunnudaginn 24. júní]
Á laugardeginum fórum við í heimsókn til Gísla og Bobby-ar og hittum þar Björn Þór Jónsson, fyrrum vinnufélaga Finns hjá EJS, sem og rússneska konu sem var vinnufélagi Gísla hjá RightOrder. Björn Þór verður hér næstu vikurnar að leita að rannsóknarverkefni fyrir Háskólann í Reykjavík, þar sem hann vinnur núna.
Við kíktum að sjálfsögðu fyrst í heitu pottana með þeim og spjölluðum saman og átum svo dýrindis kjöt- og pastarétt sem Björn eldaði af stakri snilld.
Finnur og Björn Þór
Gísli
Stelpurnar (Bobby, Hrefna og Ira) í stofunni
Feimnu kettirnir létu meira að segja sjá sig þrátt fyrir mannfjöldann
sem var í heimsókn...
En þeir lögðust fljótt undir flatt enda ekkert gaman
að fylgjast með þessu mannfólki...