Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Við erum flutt!!
Þriðjudagur 19. júní (HMG) - [Sett á vefinn þriðjudaginn 19. júní]
Já, þar kom að því! Á fimmtudaginn síðasta fengum við að vita að okkur hefði verið úthlutað íbúð í The Oaks, sem var í öðru sæti af þeim íbúðum sem við vildum komast í. Hins vegar þýddi það líka að við þurftum að sækja lyklana á mánudaginn (í gær) og vera búin að skila af okkur núverandi íbúð klukkan 17:00 á miðvikudag (á morgun). Síðustu dagar hafa því farið í að pakka og undirbúa flutning, en ekki í að uppfæra heimasíðuna, sem þýðir að núna erum við heldur betur með buxurnar á hælunum hvað það varðar. Og til að bæta gráu ofan á svart, þá fáum við líklega ekki Internet-tenginu fyrr en eftir rúmlega viku! Þannig að þið verðið bara að vera þolinmóðir lesendur góðir! :)
Nýja íbúðin er sem sagt í The Oaks, sem er með heimasíðu á apartmentguide (Select state: California; Select metro area: San Francisco Bay Area
og Enter keyword: the oaks). Þeir eru með svona "online tour" valmynd sem er nokkuð sniðug.
Ef einhver skyldi fá skyndilega löngun til að senda okkur pakka eða bréf, þá er nýja heimilisfangið:
Hrefna Marin Gunnarsdottir,
2005 California Street, apt 37,
Mountain View, CA 94040,
USA
Hér eru líka myndir sem Finnur tók þegar hann fór að skoða íbúðirnar í fyrsta skipti. Þessar myndir eru af íbúð sem er spegilmynd af okkar, en þær eiga það sameiginlegt að vera báðar með bæði splúnkuný teppi og eldhúsinnréttingu (úr "maple"-viði), ásamt því að vera með risastórar svalir og "skylight" í stofunni.
Séð yfir íbúðirnar í The Oaks.
Við erum í íbúð í horninu til vinstri sem sést ekki á þessari mynd.
Þessi mynd er tekin úr hinni áttinni. Okkar svalir eru hægra megin við
fjarlæga dökka tréið á miðri mynd.
Annar helmingurinn af eldhúsinu (okkar er spegilmynd af þessu).
Þessi viður er alveg rosalega flottur, en kemur því miður ekkert
sérstaklega vel út á mynd... Takið eftir uppþvottavélinni!! :) :)
Hinn helmingurinn af eldhúsinu, með stórri eldavél, ísskáp og örbylgjuofni.
Þessi mynd er tekin úr borðstofukróknum sem sést á næstu mynd.
Hér er borðstofukrókurinn með þessari fínu ljóskrónu! :)
Hér er horft úr borðstofukróknum inn í stofu. Takið eftir "skylight"-inu. :)
Til vinstri er síðan baðherbegið og vinstra megin við það er svo svefnherbegið.
Baðherbergið - bjart og fínt! :)
Hérna er síðan svefnherbergið.
Baðherbergið er til hægri og Finnur er í horninu! :)
Hér sést inn í skápana í svefnherberginu - greinilega nóg af plássi!
Og að lokum er síðan mynd af svölunum - þær eru alveg RISASTÓRAR!! :)
Flutningarnir hafa annars gengið alveg ljómandi vel. Við ákváðum að vera ekkert að leigja bíl því við eigum engin stór húsgögn, og því höfum við bara verið að keyra fram og til baka á bílnum okkar. Við viljum þakka Soffíu og Ágústi alveg sérstaklega fyrir að lána okkur um 15 stóra plastkassa (eða plast-"dúnka") til að flytja draslið okkar í - svona plastkassar eru bara algjör snilld!! :)
Á næstu dögum verðum við svo að kaupa okkur rúm, sófa, borð, stóla og hillur... það er sem sagt von á Ikea ferð á næstunni... ;)