Family picture
Welcome!! This site chronicles the life of Hrefna, Finnur, Anna and Bjarki. Currently Hrefna is working towards her Ph.D. in Electrical Engineering at Stanford University and Finnur's working for Google. Most of the blog entries are in Icelandic, but some are in English, and the picture-pages are on the left! :)

RSS

Hrefna: Þakkargjörðarhátíð

Leggja orð í belg fimmtudagur, nóvember 26, 2009

Í dag var "þakkargjörðarhátíðin" (Thanksgiving), sem er á við jól án gjafa. Við endurtókum leikinn frá því í fyrra og borðuðum mat hjá Katie og Dirk. Við mættum með (mitt fyrsta) berjapæ, salat, sósu og sítrónur til límonaðigerðar (þau eiga svona líka sniðuga sítrónu-kreystara-vél). Maturinn tókst afskaplega vel og við rúlluðum út úr húsi þegar líða tók á kvöldið.


Anna við berjapæið sem við bjuggum til saman, áður en það
fékk á sig deig-lok.


Bara að minna sjálfa mig á að ég bý rétt hjá San Fran!


Sean, Lulu og Anna eyddu eftirmiðdeginum í tölvunni.


Sean, Lulu, Katie, Anna, Dirk, Finnur og Bjarki.

[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Límonaði

Leggja orð í belg fimmtudagur, nóvember 26, 2009

Í dag týndum við sítrónur af sítrónutrénu í bakgarðinum okkar (!!!) og bjuggum til límonaði. :)


Anna og Bjarkia að týna sítrónur í bakgarðinum.


Anna stóð sig eins og hetja við að kreista sítrónur.


Eitt stykki kreist sítróna.


Anna við könnuna með 2dl sítrónusafa, 2dl sykri og 2dl vatni.
Við bættum svo við ennþá meira vatni, og örlítið meiri sítrónu.

 Steinunn: "Límonaði"

27.11.2009 03:04 


Mmmm, ég fæ bara vatn í munninn Þarna hefði safapressan mín komið að góðum notum  
 
[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Indverskt brúðkaup

Leggja orð í belg sunnudagur, nóvember 22, 2009

Á sunnudaginn fórum við í brúðkaup Kamakshi og Shashi sem var haldið í Livermore. Athöfnin tók rúma tvo tíma, svo skoðuðum við hofið sjálft, og síðan var borðaður hádegisverður. Við tókum að sjálfsögðu glás af myndum, en lentum í smávægilegum tæknilegum örðugleikum (batteríin í flassinu kláruðust) svo að margar myndirnar eru heldur gular/dökkar (og nei Óli, ég er ekki ennþá farin að taka myndir í RAW...)

Hér eru myndirnar:

2009-11-22 K&S Wedding


 Sonja: "Indverskt brúðkaup"

24.11.2009 13:58 


Ég hélt að þú hefðir farið í Indjánabrúðkaup ekki Indverskt brúðkaup  
 

 Hrefna: "Indverskt brúðkaup"

24.11.2009 14:05 


Hehe...

Já, ég veit ekki hver ákvað að bjóða upp á stórkostlegan misskilning með orðinu "Indian". Annars held ég að "Native American" sé "politically correct" nafnið á Indjánum (ekki Indverjum).  
 

 Sonja: "Indverskt brúðkaup"

24.11.2009 19:28 


Ég held að fólk í The Plains, rétt norðan við Athens, myndi nú ekki alveg kveikja á perunni alveg strax ef þú spyrðir það hvernig þú myndir finna the Native American Mound. Hérna heitir það Indian Mound http://www.athensohio.com/whattodo/index.php?page=25&item=86  
 

 Sonja: "Indverskt brúðkaup"

25.11.2009 12:15 


Það rifjaðist upp fyrir mér að í vor gerði ég sömu mistök nema öfugt. Ég þekki konu sem heitir Kosia og mér fannst þetta svolítið spes nafn og spurði hana hvaðan það væri komið og hún sagði mér að það væri indverskt. Mér fannst það skrítið þar sem þetta nafn er ekkert sérstaklega indverskt á að líta og svo er hún sjálf langt frá því að vera með nokkurt indverskt blóð í æðum. En svo var þetta víst indjánanafn. Ég man ekki hvað ættflokkurinn heitir sem það tilheyrir.  
 
[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Green library

Leggja orð í belg þriðjudagur, nóvember 17, 2009


[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Top of the world

Leggja orð í belg þriðjudagur, nóvember 17, 2009


[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Krakkalakkar

Leggja orð í belg mánudagur, nóvember 16, 2009

Anna fór í klippingu fyrir viku síðan, og meirparturinn af hárinu fékk að fjúka. Nú er ekkert mál að greiða hárið á morgnana og við erum afskaplega fegin að vera laus við hinn daglega grátur. Í dag fórum við mæðgur saman að ná í Bjarka á leikskólann, og sá var nú kátur að sjá stóru systur (og mömmu, hann er búinn að vera á miklu mömmu-skeiði undanfarið).


Bjarki kátur hjá stóru systur.


Anna er sem fyrr mikið fyrir að halda á Bjarka,
eins og að hann sé dúkka.


Meira hald...


Vúps! Þetta var reyndar viljandi... :)
Ég verð annars að skjalfesta það að ég fór með Bjarka í enn eitt þroskaprófið á Stanford spítalanum (númer 3 eða 4) og í þetta sinn var læknirinn það sátt að hún útskrifaði hann. Á leiðinni út fengum við samt bækling með upplýsingum um "frekari þjónustu" og viðvörun um að fyrirburar læri oft öðruvísi en venjuleg börn. Ekki að þau geti ekki lært, heldur að þau þurfi stundum eitthvað sérsniðið. Við þurfum vonandi ekki að hafa áhyggjur af því í þrjú ár eða svo...

[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Á kampus

Leggja orð í belg mánudagur, nóvember 16, 2009

Ég fór í dag og skilaði af mér bókasafnsbók. Var með myndavélina og tók nokkrar myndir.


Verkfræðiprófessorar, aka The Wall of Men.


Geymslugangur. Terman er hálf sorgleg bygging,
það hefur staðið til að rífa hana svo lengi sem ég man.


"Stöðuvatnið". Fólkið sem er hægra megin við skiltið gekk
upp að vatninu og hváði. Það sagðist muna eftir því þegar það var
vatn, en ekki grasi vaxin skál. Takið eftir bátnum vinstra megin...


Póstkorta-Stanford.

 Guðrún Finnsdóttir: "Á kampus"

17.11.2009 05:21 


Ertu farin að pakka í huganum? Þú tekur þannig myndir eins og þú sért að kveðja...  
 
[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Garðdagur

Leggja orð í belg laugardagur, nóvember 14, 2009

Í dag var garð-vinnudagur í skólanum hennar Önnu. Síðan skólinn flutti á alveg nýjan stað núna í haust, þá hefur garð-nefndin unnið að því hörðum höndum að koma upp skólagarði. Um síðustu helgi, og svo í dag, þá voru smíðuð og sett upp beð. Ég og Anna eyddum sem sagt eftirmiðdeginum í að moka mold og viðarkurl í hjólbörur og dreyfa þar sem þurfti. Alltaf gaman að verkamannast svolítið.

Í öðrum, og kannski meira spennandi fréttum, þá hef ég þannig séð fengið grænt ljós á löngu ritgerðina mína frá aðal-prófessornum. Hann vill að hinir tveir lesendurnir gefi grænt ljós fyrst áður en hann gefur formlegt grænt ljós, þannig að þar standa málin núna. Ég er búin að senda lesendunum tveimur skjalið í tölvupósti, en þarf líklega að prenta það út og hand-afhenda eftir helgi. Þetta er sem sagt allt að skríða saman, og ég er örlítið farin að velta því fyrir mér hvað ég eigi af mér að gera með ekkert hangandi yfir mér lengur. Það verður skrítið...

 Ríkey frænka: "Garðdagur"

16.11.2009 15:22 


Grænt ljós - jeeeiiii!!! 
 
[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Hringir

Leggja orð í belg fimmtudagur, nóvember 12, 2009


[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Illgresi

Leggja orð í belg fimmtudagur, nóvember 12, 2009


[+] Leggja orð í belg

Hrefna: A lestarstod

Leggja orð í belg fimmtudagur, nóvember 12, 2009


[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Á leiðinni heim

Leggja orð í belg miðvikudagur, nóvember 11, 2009


Hjólafrumskógurinn (óvenju strjáll) fyrir framan bygginguna mína.
Það er of langt fyrir fólk að ganga 40 m til að ganga almennilega frá
hjólinu sínu í þar tilgerðu hjólastæði. Stundum hefur mig dreymt um
að sparka einu hjóli niður til að sjá restina falla. Grump!


Það er komið haust!


Stanford skólahljómsveitin að nýlokinni æfingu.


Hér stoppaði ég til að kaupa smá ávexti og grænmeti.
Posted by Picasa

 Steinunn: "Á leiðinni heim"

12.11.2009 10:13 


Hehe, þetta kemur oft fyrir hjólin hér í Danaveldi. Það er eitt hjólið dettur (oftast óvart) og hin detta á eftir eins og domino kubbar Mitt er samt yfirleitt í hjólastæði þegar það er pláss svo það hefur ekki dottið... ennþá  
 
[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Stanford inngangur

Leggja orð í belg miðvikudagur, nóvember 11, 2009

Tók myndir með símanum þar sem ég hjólaði frá lestarstöðinni og inn á kampus...


Aðalinngangurinn inn á Stanford kampusinn, með svona
líka fallegum umferðarljósum beint fyrir framan.


Inngangurinn , mínus umferðarljósin. Innan við hliðið heitir þessi gata
"Palm Drive", en fyrir utan hliðið heitir hún "University Avenue".


Annar stöpullinn. Ég held að þessi hjólaleiðbeining
sé sálfræðipróf... :)

[+] Leggja orð í belg

Hrefna: USA-bolti

Leggja orð í belg þriðjudagur, nóvember 10, 2009

"Fót"-boltaliðið að æfa sig í lok dags. Takið eftir
sjónvarpsmyndatökumanninum á lyftipallinum. Það eru 2-3
upptökumenn per æfingu. Liðið er óheyrilega mannmargt.


[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Útsýni

Leggja orð í belg mánudagur, nóvember 09, 2009

Hjólavagninn á lestinni er alltaf á endanum sem vísar til San Francisco.
Gott útsýni!


[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Hjólavagn

Leggja orð í belg mánudagur, nóvember 09, 2009

Hver lest er með 1 eða 2 hjólavagna. Mikil snilld!


[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Heimleið

Leggja orð í belg mánudagur, nóvember 09, 2009

Nennti ekki að hjóla heim í dag. Þá er þar bara lestin! :)


[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Tönn númer 2 farin

Leggja orð í belg föstudagur, nóvember 06, 2009

Anna missti tönn númer 2 í gærkvöldi. Það fylgdi því mikil gleði, enda erfitt að borða mat með laflausa neðri framtönn.


Anna úti í morgun.


Anna sýnir stóra tanngatið sitt.

[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Nýtt lítið kríli!

Leggja orð í belg mánudagur, nóvember 02, 2009

Stóru fréttir helgarinnar voru að sjálfsögðu að litla snúllan/dúllan/rúsínan/prinsessan/dóttir Nökkva bróður og Jóhönnu ákvað loksins að kíkja í heiminn, eftir kósí dvöl í móðurkviði. Hún var hvorki meira né minna en 17.5 merkur (4.4 kg eða 9.6 lbs) og 56 cm (22 inches)!!! Við óskum nýorðnum foreldrum hjartanlega til hamingju með dótturina!! :)


Nökkva- og Jóhönnudóttir, fædd 1. nóv 2009.
Fleiri myndir hér!

 Adda: "Nýtt lítið kríli!"

03.11.2009 01:14 


Til lukku með frænkuna  
 
[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Af farsíma

Leggja orð í belg mánudagur, nóvember 02, 2009

Var að hreinsa til á farsímanum og rakst á nokkrar myndir.


"Icelandic Moss" í tannkremi?!


Krakkarnir hamast á leikvelli fyrir viku síðan.


Við eina bátahöfnina í San Fran í gærkvöldi um sólsetur.
Gærdagurinn fór í að gæsa eina stelpuna sem var í rafmagninu.


Borðuðum m.a. snemmbúinn kvöldverð á "Greens Restaurant".

[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Hrekkjavaka

Leggja orð í belg laugardagur, október 31, 2009

Í dag héldu Bandaríkjamenn Hrekkjavökuna hátíðlega. Í tilefni af því komu Sigga, Mario og Katla í heimsókn, enda fáir krakkar þar sem þau eiga heima.


Anna missti sína fyrstu tönn í dag. Hér sýnir hún gatið
og tönnina sem var að sjálfsögðu sett í zip-lock poka! :)


Katla, Anna og Bjarki með nammiskálina okkar.


Hrekkjavökufarar. :)


Má bjóða þér nammi? ;)

[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Grasker

Leggja orð í belg föstudagur, október 30, 2009

Það er orðin hefð hjá okkur að skera út grasker kvöldið fyrir Hrekkjavöku. Þetta ár var engin undartekning, og við fengum góðan liðsauka.


Finnur, Anna og Bjarki hjá risa-graskeri.


Skurðarmeistararnir í ár.


Anna hannaði andlit á sitt eigið grasker.


Hrefna og Deirdre skárum andlitið út fyrir Önnu.


Augusto með alvöru græju!


Afraksturinn: Matt bjó til Teenage Ninja Turtle, Finnur skóf úr risa-auga,
Hrefna skar út vampíru, Anna hannaði fílamann, Sarah sá um klassíkina,
Augusto skar út grasker, og Deirdre bjó til könguló fyrir Bjarka.

 Ríkey frænka: "Grasker"

01.11.2009 17:54 


Geggjað flott!  
 
[+] Leggja orð í belg

Hrefna: Flugsafns-afmæli

Leggja orð í belg sunnudagur, október 25, 2009

Okkur var boðið í 2ja ára afmæli til bekkjarbróðurs Bjarka í morgun. Afmælisveislan var haldin á óvenjulegum stað: á flugsafni í nágrenninu. Eins og tilheyrir þá fór fjölskylda afmælisbarnsins yfir um í skreytingum, og almennum undirbúningi, og leysti meðal annars krakkana okkar út með gjöfum sem kostuðu meira heldur en gjöfin sem við gáfum afmælisbarninu. Þetta var samt hin besta skemmtun, enda höfum við oft séð skiltið fyrir safnið á leið upp í borg, en aldrei farið inn.


Anna og Bjarki í morgunsárið.


Nafnið á safninu.


Innan dyra er mökkur af gömlum flugvélum. Það ægir öllu
svolítið saman þarna inni svo það er erfitt að taka myndir.


Afmælisherbergið. :)

Eftir hádegislúrinn þá fór ég með krakkana á leikvöll í nágrenninu og hitti þar "nýja" íslenska fjölskyldu, Oddný og Thor, sem eiga heima rétt hjá okkur. Þau höfðu samband í tölvupósti í vikunni, eftir að hafa rekist á okkur á netinu. Þau eiga einn tveggja ára, og ekki ólíklegt að við eigum eftir að hitta þau oftar á næstunni! :)

 Sonja: "Flugsafns-afmæli"

26.10.2009 04:54 


Það tíðkast ekki að gefa gjafir til veislugesta hérna hjá okkur. Amk ekki í þeim fáu afmælisboðum sem við höfum farið í. Yfirleitt er það mjög látlaust bara og afslappað, enda er þetta svæði (SE Ohio) ekki beint efnamikið.  
 
[+] Leggja orð í belg

Dagbækur


Anna
Ásdísarmyndir
 

Lesendur

RSS fyrir lesendakomment 

Límonaði
Mmmm, ég fæ bara vatn í munninn Þa...
(Steinunn 27.11.09)

Indverskt brúðkaup
Það rifjaðist upp fyrir mér að í vor ...
(Sonja 25.11.09)

Indverskt brúðkaup
Ég held að fólk í The Plains, rétt no...
(Sonja 24.11.09)

Indverskt brúðkaup
Hehe... Já, ég veit ekki hver ákva...
(Hrefna 24.11.09)

Indverskt brúðkaup
Ég hélt að þú hefðir farið í Indjánab...
(Sonja 24.11.09)

Á kampus
Ertu farin að pakka í huganum? Þú tek...
(Guðrún Finnsdóttir 17.11.09)

Garðdagur
Grænt ljós - jeeeiiii!!!
(Ríkey frænka 16.11.09)

Lesendakomment: RSS fyrir lesendakomment
 

Leita

Google
Web hrefna.com
 

Eldra blogg


2009
Nóv Sep Okt
Júlí Ágúst
Maí Júní
Mar Apríl
Jan Feb

2008
Nóv Des
Sep Okt
Júlí Ágúst
Maí Júní
Mar Apríl
Jan Feb

2007
Nóv Des
Sep Okt
Júlí Ágúst
Maí Júní
Mar Apríl
Jan Feb

2006
Nóv Des
Sep Okt
Júlí Ágúst
Maí Júní
Mar Apríl
Jan Feb

2005
Nóv Des
Sep Okt
Júlí Ágúst
Maí Júní
Mar Apríl
Jan Feb

2004
Nóv Des
Sep Okt
Júlí Ágúst
Maí Júní
Mar Apríl
Jan Feb

2003
Nóv Des
Sep Okt
Júlí Ágúst
Maí Júní
Mar Apríl
Jan Feb

2002
Nóv Des
Sep Okt
Júlí Ágúst
Maí Júní
Mar Apríl
Jan Feb

2001
Des
Nóv
Okt
 

Ýmislegt



Uppskriftir